Blogg

Andað inn á nýju ári

Posted by on Jan 4, 2023 in Blogg | 0 comments

Nýtt ár markar alltaf ákveðin kaflaskil. Liðið er liðið og framtíðin óskrifuð. Það er freistandi að láta bjartsýni og elju bera sig ofurliði í fyrirætlunum, markmiðum og plönum. Mig langar alls ekki að draga úr þessari rússíbanatilfinningu ákefðarinnar sem fylgir nýju ári, þeirri gleði og forvitni sem vaknar innra með mér um hver áramót. Ég ætla að njóta þess en á sama tíma ekki gleyma að anda inn á nýju ári.